25. febrúar 2015 |
Frumnámskeið í stjórn og meðferð vinnuvéla
Námskeið í stjórn og meðferð gaffallyftara, hleðslukrana, dráttarvéla með tækjabúnaði, körfubíla, steypudælna og valtara verður haldið í Rósubúð á Hólmavík dagana 24.-26. mars ef næg þátttaka fæst.
Verðið er kr. 41.000. Skráning á heimasíðu Vinnueftirlitsins (www.ver.is) eða í síma 550 4653 eða netfanginu elisabet@ver.is.
Síðasti skráningardagur er 18. mars.
Á það er minnt, að hægt er að sækja um styrk til verkalýðsfélaga.