Tenglar

18. nóvember 2008 |

Frumvarp um sameiningu sveitarfélaga á leiðinni

Frá fundinum með ráðherra.
Frá fundinum með ráðherra.

Kristján L. Möller ráðherra sveitarstjórnarmála ræddi í síðustu viku um sameiningarmál við fulltrúa fámennra sveitarfélaga, sem hafa með sér óformleg samtök innan Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar lýsti ráðherrann þeirri hugmynd sinni að hækka lágmarksfjölda íbúa í sveitarfélagi úr fimmtíu í eitt þúsund manns og skiptist á skoðunum við fundarmenn. Óskar Steingrímsson sveitarstjóri sat fundinn fyrir hönd Reykhólahrepps.

 

Fulltrúar fámennra sveitarfélaga óskuðu eftir fundi með ráðherranum til að heyra nánar af sameiningarhugmyndum hans. Fór Kristján í máli sínu yfir þýðingu þess að efla og stækka sveitarfélög til að þau yrðu betur í stakk búin til að standa undir öflugri þjónustu og nýjum verkefnum sem þeim verða falin.

 

Fram kom í máli ráðherrans, að hann hyggst í þessum mánuði kynna frumvarp um að hækka lágmarksfjölda íbúa sveitarfélaga upp í eitt þúsund manns. Lýsti hann þeirri hugmynd að sveitarfélögum yrði gefinn aðlögunartími til að vinna að sameiningu fram á árið 2012 en eftir það myndi hin væntanlega lagabreyting taka gildi. Sagði hann þó, að tekið yrði tillit til sérstakra aðstæðna ef rök mæltu með undanþágum.

 

Hátt í 50 forráðamenn eða fulltrúar sveitarfélaga með innan við þúsund íbúa sátu fundinn og lýstu þeir margir sig andvíga hugmyndum um að lögbinda lágmarksfjölda, sem sumir töldu til forsjárhyggju, en kváðust sammála því að sameina mætti sveitarfélög. Fram kom hjá fundarmönnum að skilyrði fyrir frekari sameiningum væru til dæmis umbætur í samgöngu- og fjarskiptamálum og horfa yrði til margs konar landfræðilegra aðstæðna við sameiningar fremur en ákveðins íbúafjölda. Þar skiptu og tekjumöguleikar sveitarfélaganna höfuðmáli. Þá bentu nokkrir fundarmanna á góðan árangur af samvinnu sveitarfélaga um ýmsa þjónustu. Einnig kom fram í máli þeirra að brýnt væri að aukaframlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sem greitt var á þessu ári og því síðasta, fengist greitt áfram nú þegar séð væri fram á mikla tekjurýrnun sveitarfélaga.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31