Tenglar

21. júlí 2011 |

Frystihúsið í Flatey - úr hrognasöltun í ferðamennsku

Gamalt og hrörlegt frystihús öðlast smám saman nýtt líf. Mynd: Fréttablaðið / Lísa Kristjánsdóttir.
Gamalt og hrörlegt frystihús öðlast smám saman nýtt líf. Mynd: Fréttablaðið / Lísa Kristjánsdóttir.

Frystihúsið í Flatey á Breiðafirði gengur nú í endurnýjun lífdaga en Lísa Kristjánsdóttir segir ýmsar hugmyndir uppi um nýtt hlutverk þess. Félagið Þrísker, sem Lísa fer fyrir, stendur að framkvæmdunum. „Það eru uppi hugmyndir um að hafa þarna biðsal, veitingasölu eða safn, nú eða allt þetta,“ segir Lísa. Búið er að teikna íbúðir á efri hæð hússins sem leigðar verða út. Þegar hefur Bryggjubúð verið opnuð í húsinu en þar er seldur ýmis varningur er tengist eynni á einn eða annan hátt, segir hún. „Eins seljum við malt og appelsín svona til að ýta undir nostalgíuna,“ bætir hún við.

 

Frá þessu er greint í Fréttablaðinu. Flatey rétt eins og mestur hluti Breiðafjarðareyja heyrir undir Reykhólahrepp, eins og kunnugt er.

 

„Þetta hús er minnisvarði um þá stefnu stjórnvalda að reyna að bjarga hverju byggðarlagi með því að koma þar niður frystihúsi,“ segir Lísa „Ekki ósvipað því sem stjórnvöld hafa verið að reyna á undanförnum árum með álverum. Sem betur fer eru þó frystihúsin mun fallegri hús og starfsemi þeirra öllu umhverfisvænni.“

 

Frystihúsið í Flatey var byggt árið 1950 en þá bjuggu um 150 manns í eynni. Síðast var fiskvinnsla þar árið 1996 en þá voru söltuð þar hrogn.

 

Meðfylgjandi mynd sem birtist í Fréttablaðinu tók Lísa Kristjánsdóttir og með henni er þessi texti: Frystihúsið í Flatey. Eins og sjá má er komð nýtt þak á hluta hússins. Inni er hvorki að finna flattan fisk né hrogn í tunnum heldur varning fyrir ferðamenn.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31