Tenglar

22. apríl 2011 |

Fuglarnir koma með sumarið við Breiðafjörð

Stelkurinn var „fjölmennur“ á Reykhólum bæði fljúgandi og vappandi eldsnemma á lognværum morgni annars sumardags. Steinþegjandi, þessi venjulega raddhvelli og háværi fugl. Ef til vill af tillitssemi við sofandi fólk á sjálfan föstudaginn langa. Líklegra samt að hann spari róminn þangað til rétti tíminn kemur. Vissulega er stelkurinn ekki eini farfuglinn sem kominn er til leiks í fuglauðugasta héraði landsins. Oft eru þeir saman tveir og tveir á flugi. Staðfuglinn rjúpa er líka á ferð, ennþá í sínum fannhvíta vetrarbúningi og þannig auðgreind fálkanum á auðri jörð. Tveir svanir í lágflugi í austurátt.

 

Vorið er komið við Breiðafjörð. Gott ef ekki sumarið líka.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31