Fullt út úr dyrum að fylgjast með smíðinni
„Þetta er það alskemmtilegasta sem ég hef komist í. Að sjá bátinn birtast fyrir augunum á mér eftir 10 ára vinnu er engu líkt,“ segir Hjalti Hafþórsson um endursmíði á bátnum sem fannst í kumli í Vatnsdal við sunnanverðan Patreksfjörð 1964. Smíði bátsins hófst í gamla slippnum á Siglufirði í lok júlí og er báturinn nánast tilbúinn. „Það er sérstakur fílingur að smíða bátinn hérna inni,“ segir Hjalti um aðstöðuna, en mennta- og menningarmálaráðuneytið og Síldarminjasafn Íslands styrktu verkefnið.
Ofanritað kemur fram í frétt á baksíðu Morgunblaðsins í dag. Hjalti Hafþórsson er búsettur á Reykhólum en hefur notað sumarfríið sitt í bátssmíðina á Siglufirði. Hann kemur aftur í kokkaríið í mötuneyti Reykhólahrepps nú um mánaðamótin en ætlar að nota vaktafríin til að ljúka verkinu fyrir norðan.
- Margir hafa fylgst með smíðinni og gestum hefur fjölgað eftir því sem verkinu hefur miðað áfram. „Það hefur komið mér á óvart hvað áhuginn hefur verið mikill,“ segir Hjalti, en um helgina var skemmtiferðaskip í Siglufirði og fullt út úr dyrum hjá honum. Hjalti segir að erlendu gestirnir hafi tæmt birgðirnar af trénöglunum, fengið þá sem minjagripi.
- „Aðstoðarmaður minn, karl faðir minn, Hafþór Rósmundsson, hefur tálgað alla trénaglana og hann situr núna og tálgar.“
- Báturinn er feræringur, smíðaður úr lerki eins og Vatnsdalsbáturinn. Hann er 5,90 m að lengd en Þór Magnússon, fornleifafræðingur og síðar þjóðminjavörður, taldi að gamli báturinn hefði varla verið mikið yfir sex metra langur.
Lesið umfjöllunina í heild á mynd nr. 2 (smellið á hana til að stækka).
► 31.05.2012 Styrkur til endursmíði báts frá árdögum Íslendinga (mikill fróðleikur um Vatnsdalsbátinn)
► 10.03.2012 Fetar í spor pabbans - með óbeinum hætti þó (um Brynju Sif, dóttur Hjalta Hafþórssonar)