30. nóvember 2016 | Umsjón
Fullveldiskaffi Reykhólaskóla
Hið árlega fullveldiskaffi Reykhólaskóla verður núna á föstudagskvöld, 2. desember, í íþróttasal Reykhólaskóla. Húsið opnað kl. 19, sýning hefst kl. 19.30 og skemmtun lýkur kl. 22.30. Kaffiveitingar í höndum Foreldrafélags Reykhólaskóla.
Miðaverð:
Fullorðnir 1500 kr.
Börn 6-16 ára 500 kr.
Börn 5 ára og yngri frítt.
Nemendur og starfsfólk Reykhólaskóla hlakka til að sjá sem allra flesta.
Fullveldisdagurinn (Wikipedia á íslensku)