Tenglar

7. júní 2011 |

Fundur á Reykhólum: Fatlað fólk á tímamótum

Opinn fundur í fundaröð Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) undir yfirskriftinni Fatlað fólk á tímamótum, eru mannréttindi virt? verður í Reykhólaskóla á morgun, miðvikudag, og hefst kl. 15. Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Fundarboðendur hvetja fólk í nærliggjandi sveitarfélögum til að koma og kynna sér hvað er að gerast í þessum málum.

 

Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.

 

Sjá nánar hér um dagskrá fundarins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31