Tenglar

30. júní 2016 |

Fundur í Saltkjallaranum á Hótel Flatey

Myndir: Ágúst Már Gröndal.
Myndir: Ágúst Már Gröndal.
1 af 14

„Ferðin er liður í því að sinna skyldum okkar,“ sagði Áslaug Berta Guttormsdóttir, sveitarstjórnarmaður og fulltrúi í dreifbýlisnefnd Reykhólahrepps. „Við leggjum áherslu á gott samstarf við Framfarafélag Flateyjar, enda er félagið ásamt því sjálfstæða og harðduglega fólki sem er með fasta búsetu í Flatey lykillinn að velferð hennar,“ sagði Áslaug, og var þá að tala um fyrirhugaða vettvangsferð út í Flatey á Breiðafirði.

 

Ferðin var farin á mánudaginn og tóku þátt í henni sveitarstjórn og sveitarstjóri Reykhólahrepps, dreifbýlisnefnd sveitarfélagsins, fulltrúar slökkviliðsins og ýmsir fleiri. Þar á meðal voru fulltrúar frá siglingasviði Vegagerðarinnar sem skoðuðu höfnina og landbrot af völdum sjávar. Erindið var að hitta Flateyinga, halda fundi um málefni eyjarinnar, huga að brunavörnum og búnaði, halda slökkviliðsæfingu og skoða vettvang.

 

Í gær birtust hér á vefnum nokkrar myndir úr ferðinni sem Sveinn Ragnarsson tók. Hér koma allmargar fleiri sem Ágúst Már Gröndal tók. Helsta viðbótin frá fyrri myndunum eru myndir úr Saltkjallaranum á Hótel Flatey, þar sem fulltrúar Reykhólahrepps og fleiri sem komnir voru áttu fund með fulltrúum Framfarafélags Flateyjar. Þaðan er einmitt fyrsta myndin hér, en hinar eru í réttri tímaröð.

 

Vettvangsferð út í Flatey á Breiðafirði

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31