Tenglar

31. október 2016 |

Fundur með ungu fólki um framtíðarsýn svæðisins

Svæðisskipulagsnefnd fyrir landsvæði Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar býður ungu fólki frá sveitarfélögunum (16-30 ára), sem býr á höfuðborgarsvæðinu eða þar í grennd eða er statt á þeim slóðum nú í nóvember, að eiga stund með skipulagsráðgjöfum hjá Alta til að ræða framtíðarþróun svæðisins. Ungmenni sem annað hvort búa í þessum sveitarfélögum eða annars staðar á landinu eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomin líka.

 

Stundinni verður varið þannig:

  1. Kynning á spennandi vinnu sem nú er í gangi við að móta sameiginlega stefnu sveitarfélaganna þriggja, en hún miðar að því að efla byggð.
  2. Umræður um sérkenni og tækifæri svæðisins og hugmyndir um framtíðarþróun þess. Ráðgjafar frá Alta stýra umræðunum stig af stigi.
  3. Samantekt helstu skilaboða til svæðisskipulagsnefndar.

Þessi kynningar- og umræðustund, ætluð ungu fólki á aldrinum 16-30 ára, verður hjá Alta að Ármúla 32 í Reykjavík fimmtudaginn 17. nóvember kl. 16.30-19. Boðið verður upp á hressingu.

 

Skráning í netfanginu matthildur@alta.is fyrir mánudaginn 14. nóvember.

 

Nánari upplýsingar á myndinni sem hér fylgir.

 

Tímamótafundur um frekari samvinnu (október 2016)

 

Vörumerki svæðisins og skipulagning ferðaleiða (september 2016)

 

Hugmyndasúpufundur um svæðisskipulag (apríl 2016)

 

Fyrsti fundur svæðisskipulagsnefndarinnar (mars 2016, fleiri tenglar þar neðst)

 

Vefur um svæðisskipulag Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar

 

Svæðisskipulagsnefnd, aðal- og varafulltrúar, sveitarstjórar og ráðgjafar

 

Alta

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31