23. júní 2012 |
Furðudýr skelfir og drepur selina
Ofanritaða fyrirsögn getur að líta í Alþýðublaðinu 16. júlí 1964 eða fyrir 48 árum. Nokkrum dögum áður birtist í blaðinu Degi á Akureyri frétt um að óvættur nokkur eða sjávardýr grandi sel hér vestra og var frétt Alþýðublaðsins unnin í framhaldi af því. Selirnir ráku upp óttaöskur er fyrirsögnin í Degi.
Vinur þessa vefjar, sá margfróði maður Jónas Ragnarsson (Dagar Íslands) sendi ábendingu um þessar fréttir í framhaldi af fréttinni um háhyrningana hér á vefnum í gær og umræðum þar fyrir neðan. Segja má að Þrym Sveinssyni frá Miðhúsum, sem á þar athyglisvert innlegg, sé þetta mál óneitanlega nokkuð skylt!
Fréttirnar gömlu fylgja hér með - smellið á myndirnar til að gera þær læsilegar.
H. Þ. Magnússon, laugardagur 23 jn kl: 15:32
Hér er heldur betur atgangur hákarla (myndskeið á spiegel.de): http://spon.de/vfdAi