Tenglar

30. júní 2017 | Sveinn Ragnarsson

Furðuleikar á Sævangi

Trjónuboltalið
Trjónuboltalið

 

Sauðfjársetur á Ströndum heldur sína árlegu Furðuleika í fjórtánda sinn sunnudaginn 2. júlí og hefjast leikarnir kl. 13. Leikarnir eru hefðbundinn lokapunktur á bæjarhátíðinni Hamingjudögum sem haldnir eru á Hólmavík nú um helgina.

 

Furðuleikarnir snúast um að börn og fullorðnir leiki sér sama í ýmsum skringilegum og skemmtilegum greinum sem eiga sameiginlegt að þær munu aldrei fá viðurkenningu alþjóða Ólympíunefndarinnar. Meðal keppnisgreina að þessu sinni er t.d. stígvélaþeytingur, öskur, spin-it to win-it, sokkabuxnakeila og fleira. Þá verður sýningargreinin trjónufótbolti sem hefur notið gífurlegra vinsælda undanfarin ár á sínum stað, enda ótrúlega skemmtileg á að horfa.

 

Alls engar kröfur eru gerðar til keppenda um færni, þol eða fyrri reynslu í íþróttum. Yfirleitt er lítið um verðlaun, önnur en  heiðurinn, gleðina og ánægjuna af því að taka þátt. Verðlaun verða þó veitt fyrir bestu frammistöðuna í spin-it to win-it.

 

Í kaffistofunni verður veglegt kaffihlaðborð á boðstólum á hóflegu verði. Aðgangur að öllum sögusýningum Sauðfjársetursins er ókeypis í tilefni dagsins og sama gildir um Furðuleikana sjálfa.

 

Sauðfjársetur á Ströndum er safn sem er staðsett í Sævangi, 12 km sunnan við Hólmavík. Þar eru sögusýningar tengdar sauðfjárbúskap og einnig minjagripabúð og kaffistofan Kaffi Kind.


Ef vantar nánari upplýsingar er velkomið að hafa samband við

Ester Sigfúsdóttur, framkvæmdastjóra Sauðfjárseturs á Ströndum

Sími: 451-3324/693-3474

Netfang: saudfjarsetur@strandir.is

 

 

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31