Tenglar

25. júní 2015 |

Furðuleikar á Ströndum – BBC á staðnum

Frá Furðuleikum á Ströndum.
Frá Furðuleikum á Ströndum.
1 af 3

Sauðfjársetur á Ströndum heldur sína árlegu Furðuleika í tólfta sinn núna á sunnudag og hefjast þeir kl. 13. Leikarnir fara fram á Sævangsvelli við Steingrímsfjörð og eru lokapunkturinn á bæjarhátíðinni Hamingjudögum á Hólmavík. Á Furðuleikum er keppt í ýmsum skringilegum íþróttagreinum, sem eiga sameiginlegt að vera afbragðs skemmtun þó að þær hafi ekki enn hlotið viðurkenningu á Ólympíuleikum.

 

Meðal þess sem fólk getur prófað eru öskurkeppni, kvennahlaup (þar sem karlar hlaupa um þrautabraut með konur sínar á bakinu), ruslatínsla, stígvélakast og farsímakast og fleira. Þá má nefna trjónufótbolta sem er afar vinsæl grein og skemmtileg á að horfa.

 

Engar kröfur eru gerðar til keppenda um færni, þol eða fyrri reynslu í íþróttum og yfirleitt er lítið um verðlaun á Furðuleikum önnur en heiðurinn af því að sigra og ánægjan af því að taka þátt í þeim. Þó er veglegur farsími í verðlaun í farsímakastinu. Það er glæsilegur snjallsími, LG G3 S með háskerpuskjá, sem Síminn gefur. Skráning í keppnisgreinar fer fram á staðnum.

 

Þetta árið er hægt á að komast á spjöld sögunnar þar sem BBC verður á staðnum með keppendur og kvikmyndar leikana. Þeir verða síðan sýndir í þætti sem nefnist All over the place.

 

Á Kaffi Kind, kaffistofu Sauðfjársetursins, verður sérlega veglegt hlaðborð á boðstólum í tilefni dagsins. Aðgangur að öllum sýningum safnsins er ókeypis í tilefni dagsins og sama gildir að frítt er á Furðuleikana sjálfa. Nú eru uppi á setrinu sögusýningin Sauðfé í sögu þjóðar, sem er fastasýning, einnig sýningin Álagablettir á listasviðinu. Sýningin Manstu? – Ljósmyndir Tryggva Samúelssonar er í Kaffi Kind og í sérherbergi er sýning um Brynjólf Sæmundsson og starf héraðsráðunauta.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31