Tenglar

8. apríl 2016 |

Fyrirlestrar Karls Gunnarssonar og boð í kjötsúpu

Dr. Karl Gunnarsson, sérfræðingur í þangi og þara hjá Hafró, flytur tvo fyrirlestra á Reykhólum á morgun, laugardag. Annars vegar fjallar hann um líffræði sjávargróðurs og nytjar á Íslandi í gegnum aldirnar. Hins vegar mun hann fjalla um þær rannsóknir á þangi og þara sem eru í undirbúningi í Breiðafirði á næstu árum og tengjast auknum áhuga á nýtingu sjávargróðursins. Þær rannsóknir eiga að hefjast í vor.

 

Ráðgert var að halda þessa fundi fyrir mánuði en vegna veðurútlitsins var þeim frestað.

 

Fyrirlestrarnir verða í borðsal Reykhólaskóla og öllum opnir.

 

Karl hefur um langt árabil stundað rannsóknir í Breiðafirði og gjörþekkir fjörðinn, lífríkið og aðstæður allar. Á árum áður kom hann oft í Þörungaverksmiðjuna og hefur staðið til að góð kynni yrðu endurnýjuð með heimsókn og fyrirlestri fyrir starfsmenn. Núna hefur hugmyndin undið upp á sig og ákveðið er að fyrirlestrarnir verði tveir og opnir öllum; allir eru velkomnir, ungir og aldnir, karlar og konur, nær og fjær.

 

Þörungaverksmiðjan býður gestum í kjötsúpu um kl. 12 og um kl. 13 hefst fyrri fyrirlesturinn. Kl. 15 verður svo boðið í kaffi og kleinur og eftir það kynnir Karl fyrirhugaðar rannsóknir.

 

Þörungavinnsla: Lítið svigrúm fyrir fleiri (reykholar.is)

 

Athugasemdir

Guðrún Marta, laugardagur 09 aprl kl: 21:21

Var skemmtilegan og lærdómsríkan dag. á þessum frábæra fyrirlestri og þakka fyrir skemmtilegan og lærdómsríkan dag.

Guðrún marta, laugardagur 09 aprl kl: 21:24

Snérist eitthvað. Var á þessum frábæra fyrirlestri og þakka fyrir skemmtilegan og lærdómsríkan dag.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31