14. nóvember 2010 |
Fyrirlestur í Reykhólaskóla um einelti
Á morgun, mánudag, mun Guðjón Ólafsson, sérkennslufræðingur og fræðslustjóri Austur-Húnvetninga, halda fyrirlestur um einelti í matsal Reykhólaskóla. Fundurinn hefst kl. 17 og er fyrir alla sem áhuga hafa. Fundarboðendur hvetja alla, bæði börn og fullorðna, til að koma á fundinn.