4. maí 2016 |
Fyrsta opna hús vorsins
Opið hús verður á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum núna á laugardagskvöldið frá klukkan 20. Hægt verður að taka í spil, hitta sveitunga og hafa gaman saman. Bátakaffi verður með tilboð á léttum veitingum af matseðli. „Líka viljum við endilega fá hugmyndir um það hvað fólk vill sjá hjá okkur í sumar. Hlökkum til að hitta sem allra, allra flesta á laugardagskvöldið,“ segir Harpa Eiríksdóttir frkvstj.
Aldurstakmark er 18 ár. Síðan verður sérstakt opið hús fyrir yngri kynslóðina í byrjun júní.
Báta- og hlunnindasýningin sjálf verður svo opnuð 1. júni og verður upp frá því opin dag hvern fram á haust.