Tenglar

12. júní 2018 | Sveinn Ragnarsson

Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar

Nýkjörin sveitarstjórn hélt sinn fyrsta fund í dag. Oddviti til eins árs var kosinn Ingimar Ingimarsson, og varaoddviti Árný Huld Haraldsdóttir. Nú eru í fyrsta sinn konur í meirihluta í sveitarstjórn, 3 af 5, eða 7 af 10 þegar varamenn eru taldir með. Ein þeirra, Embla Dögg Bachmann er jafnframt yngsti kjörni fulltrúinn til þessa.

Eins og regla er á fyrsta fundi var kosið í nefndir og eru flestar komnar hér inn á síðuna. Þó vantar samstarfsnefndir sem er skipað í með fulltrúum nágrannasveitarfélaganna og mögulega starfsnefndir sem sinna afmörkuðum verkefnum.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31