Tenglar

4. október 2009 |

Fyrsti konuhittingur haustsins á Skriðulandi

Dóra á Skriðulandi ...
Dóra á Skriðulandi ...
1 af 2
Konuhittingur verður á Skriðulandi í Saurbæ á þriðjudagskvöld. Þar með verður þráðurinn tekinn upp á nýjan leik eftir að hann féll niður þegar sauðburðurinn hófst og aðrar vorannir tóku allan tíma fólks. Hittingurinn byrjar kl. 20 og stendur eins lengi og hentar. Konur hafi með sér einhverja handavinnu. Karlar mega koma þrátt fyrir nafnið á hittingnum enda hafi þeir líka með sér handavinnu og einbeiti sér að henni. Léttar veitingar verða í boði. Reikna má með því að hittingar af þessu tagi verði á Skriðulandi fyrsta þriðjudaginn í mánuði í vetur nema annað verði tilkynnt.

 

Athugasemdir

Kristín Einars, mivikudagur 07 oktber kl: 18:08

Gaman að koma í Skriðuland, hvort sem er til að borða eða skoða gjafavörurnar. Megum við "fyrir handan" líka mæta á konuhitting?

skriðuland, rijudagur 11 janar kl: 17:33

Það eru allir velkomnir á Skriðuland meðan húsrúm leyfir

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31