Gaman saman á jólaballi Kötlu
Hið árvissa jólaball Kvenfélagsins Kötlu í Reykhólahreppi verður í íþróttahúsinu á Reykhólum á föstudag, daginn fyrir gamlársdag. Það hefst kl. 16 og stendur í tvo tíma eða þar um bil. Gengið verður kringum jólatré (ekki einiberjarunn) og dansað og sungið og farið í leiki og jólasveinar koma í heimsókn. Steinunn Ólafía Rasmus spilar undir dansinum og söngnum. Ballið er öllum opið, börnum og fullorðnum, konum og köllum. Enginn aðgangseyrir en veitingar verða í boði.
Enn er meirihlutinn eftir af jólasveinum í byggð en á föstudaginn fer Askasleikir, sá sjötti í röðinni af bræðrunum þrettán. Samkvæmt hefðinni byrja þeir að tínast í burtu strax á jóladag og síðan einn á dag eftir því sem veður og færð leyfa. Síðastur fer Kertasníkir á þrettánda og síðasta degi jóla - eða eins og Jóhannes úr Kötlum orti: Á þrettándanum síðasti sveinstaulinn fór.