Tenglar

20. janúar 2009 |

Gamanmál - skemmtun og sögulegar heimildir í senn

Opnuð hefur verið ný undirsíða hér á vefnum með heitinu Gamanmál (valmyndin til vinstri). Núna í upphafi eru þar aðeins þrjú efnisatriði, sett inn í dag, en ætlunin er að safna hér saman með tíð og tíma ýmsu því sem kveðið hefur verið og samið til gamans í héraðinu. Ekki síst væri mikill fengur að annálum og gamankvæðum á þorrablótum og eftir atvikum öðrum samkomum á fyrri tíð. Gamanmál af því tagi skemmta viðstöddum á líðandi stund en þegar fram líður verða þau auk þess merkilegar heimildir um mannlífið á þeim tíma, sögulegar heimildir.

 

Fólk sem á efni af þessu tagi í fórum sínum er eindregið hvatt til að koma því til umsjónarmanns vefjarins með einum eða öðrum hætti til birtingar, lesendum til skemmtunar, upprifjunar og fróðleiks.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31