Tenglar

29. febrúar 2012 |

Gamlar myndir - óskað eftir upplýsingum

Myndirnar sem hér fylgja eru í fórum Unnsteins Hjálmars Ólafssonar (Hjalla á Grund). Vissulega er sitthvað á þeim kunnuglegt í dag en annað síður. Hvenær voru þessar myndir teknar? Hvaða hús eru það á myndunum sem núna eru horfin? Hvaða fólk átti heima í hvaða húsum? Hvað fleira er hægt að segja til fróðleiks um þessar myndir og það sem á þeim sést? Hvaða gufa eða reykur er hægra megin á mynd númer 5? Þetta getur ekki verið Kötlulaug svona vestarlega, eða hvað?

 

Stækkið myndirnar með því að smella á þær.

 

Sérlokkar eru hvattir til að senda upplýsingar í tölvupósti eða skrifa í athugasemdakerfið hér fyrir neðan eða hringja í Hjalla á Grund. Þeir sem eru litlir Sérlokkar hafa samt kannski gaman af því að sjá þessar myndir.

 

Athugasemdir

Þrymur Sveinsson, fimmtudagur 01 mars kl: 23:28

Hluti myndanna eru teknar ofan af brún Grundarfjallsins. Grund eftir tíð Jóns Kristins Ólafssonar 1938 - 1956 og Litla Grund Páls Gíslasonar. Ólafur Sveinsson tekin við búsforráðum á Grund. Myndirnar teknar fyrir 1960 þar sem útibú kaupfélagsins og Mávavatn Sigurgeirs Tómassonar eru komin á sinn stað. Mjólkurbúið vantar og vegurinn líklega enn meðfram fjallinu. Bygging núverandi kirkju á Reykhólum hefur verið komin á teikniborðið. Núverandi íbúðarhús á Grund er sagt byggt 1957 skv. fasteignamati.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31