Tenglar

5. ágúst 2016 |

Gefur kost á sér í annað til þriðja sæti

Jónína Erna Arnardóttir.
Jónína Erna Arnardóttir.

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í annað til þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í NV-kjördæmi fyrir kosningarnar í haust,“ segir Jónína Erna Arnardóttir í Borgarnesi í tilkynningu. „Ég hef undanfarin sex ár setið í sveitarstjórn Borgarbyggðar, komið þar að ýmsum málum sem snerta sveitarfélagið og öðlast talsverða reynslu. Auk þess hef ég gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sit nú í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

Þessi reynsla ætti að nýtast mér vel við störf á Alþingi og þau málefni sem ég vil leggja áherslu á eins og t.d. vegamál, en vegir innan kjördæmisins eru víða í slæmu ástandi og þarf að gera mun betur þar. Einnig þarf að hraða ljósleiðaravæðingu kjördæmisins og reyndar landsins alls. Mikilvægt er líka að hlúa að grunnþjónustu eins og heilbrigðisþjónustu og menntakerfinu. Ég tel að þetta og ótalmargt annað getum við gert án þess að skattar séu í hæstu hæðum, ef atvinnulíf fær að blómstra og þar með hagur allra.

 

Ég hlakka til að hitta sem flesta á næstu vikum til að kynna mig og heyra hvað er kjósendum í kjördæminu efst í huga.“

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31