21. júní 2012 |
Gengið um sveit - útivist, göngur, hjólreiðar
Útivistardagarnir Gengið um sveit í Reykhólahreppi byrja í kvöld með léttri fjölskyldugöngu niður að Langavatni þar sem gæsarungarnir Teista og Teisti verða með í för. Síðan rekur hver viðburðurinn annan fram á sunnudag og flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér má finna dagskrána og allar helstu upplýsingar. Skráið ykkur hjá Hörpu í síma 894 1011.
Myndirnar sem hér fylgja eru frá útivistardögunum Gengið um sveit á síðasta ári.