Tenglar

5. júní 2012 |

Gengið um sveit 2012 - eitthvað fyrir alla

Gengið um sveit 2011 - glaður gönguhópur við sundlaugina á Laugalandi.
Gengið um sveit 2011 - glaður gönguhópur við sundlaugina á Laugalandi.

Dagskrá útivistardaganna í Reykhólahreppi um Jónsmessuna (Gengið um sveit 2012) liggur fyrir. Þeir verða 21.-24. júní eða frá fimmtudegi og fram á sunnudag með mjög mislöngum og miserfiðum göngum þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þessir dagar voru í fyrsta sinn á síðasta ári og heppnuðust með miklum ágætum. Fyrir utan göngur verður hjólreiðaferð í boði eins og í fyrra og einnig verður efnt til ratleiks. Leiðsögumenn verða reyndir og fróðir, þau Gauti og Harpa Eiríksbörn frá Stað og Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli.

 

Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar, svo sem leiðalýsingar og annað sem máli skiptir (pdf). Athugið að fletta niður (tvær síður). Bæklinginn er líka að finna í dálkinum Tilkynningar hér neðst til hægri: Gengið um sveit 21.-24. júní.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31