11. mars 2016 |
Gert ráð fyrir mjög hvössu og miklu vatnsveðri
Veðurstofan spáir suðaustan 13-18 með slyddu eða snjókomu í nótt við Breiðafjörð en suðvestan 23-30 og éljum seint á morgun. Á sunnudag er gert ráð fyrir suðaustan 18-23 og talsverðri eða mikilli rigningu og 5 til 10 stiga hita. Á mánudag er spáð sunnan og suðvestan 13-20 og víða rigningu og hita víða vel yfir frostmarki. Á þriðjudag er gert ráð fyrir suðaustan hvassviðri með rigningu.
Það er vissara að fylgjast með niðurföllum og gera viðeigandi ráðstafanir þar sem vatnsveðrið er viðvarandi, segir á vef Veðurstofunnar.