20. febrúar 2012 |
Gísli Einarsson, Eyvi og bollurnar - myndskeiðið
Eins og væntanlega flestir hér vita elti Gísli Einarsson fréttamaður RÚV Eyva í Hólakaupum í bolluflutningnum sunnan úr Borgarnesi og vestur á Reykhóla. Hér er tengill á myndskeiðið í fréttum Sjónvarps í kvöld (byrjar a.m.k. eins og nú standa sakir á sjö sekúndna niðurlagi fréttar um selveiði).
Viðkomustaðir Gísla í fréttinni eru þrír: Geirabakarí í Borgarnesi, Hólakaup og Þörungaverksmiðjan.