Tenglar

25. október 2016 | Umsjón

Gísli á Uppsölum: Sýning í Sævangi

Elfar Logi Hannesson.
Elfar Logi Hannesson.

Kómedíuleikhúsið heimsækir Strandir á fimmtudagskvöld, 27. október, og sýnir leikritið Gísla á Uppsölum í Sauðfjársetrinu í Sævangi. Sýningin hefst kl. 20. Gísli á Uppsölum er 40. leikverkið sem Kómedíuleikhúsið setur á svið. Meðal annarra verka leikhússins má nefna verðlaunaleikinn Gísla Súrsson, hinn kraftmikla Gretti og hápólitíska gamanleikinn Heilsugæsluna.

 

Höfundar leiksins um Gísla á Uppsölum eru Bílddælingarnir Elfar Logi Hannesson og Þröstur Leó Gunnarsson. Elfar Logi leikur og Þröstur leikstýrir. Höfundur tónlistar er Svavar Knútur.

 

Gísli á Uppsölum er einstakt leikverk um einstakan mann. Einn stærsti viðburður íslenskrar sjónvarpssögu er Stikluþáttur Ómars Ragnarssonar um einbúann Gísla Oktavíus Gíslason á Uppsölum í Selárdal við Arnarfjörð. Enn er Gísli landanum kær og hugleikinn. Hér er á ferðinni áhrifamikil sýning sem hefur hrifið áhorfendur, rétt eins og saga söguhetjunnar.

 

Miðasölusími er 891 7025 og hægt er að fræðast frekar um sýninguna á Facebook.

 

(Frá Sauðfjársetri á Ströndum).

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31