Tenglar

12. maí 2012 |

Glæðir: Salan í ár að nálgast allt árið í fyrra

Dalli við Glæðisgerð.
Dalli við Glæðisgerð.
1 af 2

„Það hafa orðið miklar breytingar frá því ég byrjaði að markaðssetja Glæði um aldamót,“ segir Guðjón D. Gunnarsson (Dalli) á Reykhólum. „Fyrstu árin seldi ég mest í 25 lítra brúsum til verktaka en salan í litlum brúsum var lítil. Síðustu árin hefur salan í eins lítra og fimm lítra brúsum hins vegar stóraukist. Salan það sem af er þessu ári er að nálgast alla árssöluna í fyrra,“ segir hann.

 

Glæðir er lífrænn áburður úr íslensku hráefni sem nota má við lífræna ræktun. Hann hentar jafnt að vori sem hausti á grasflatir og tré og blóm bæði úti og inni. Vökvinn eins og hann kemur úr brúsunum er blandaður vatni til vökvunar og úðunar.

 

Núna í sumar eru fjórtán ár frá því að Dalli hóf tilraunir með þangvökva til áburðar. Hráefnið er klóþang, vatn og kalíumsódi og hæg eru heimatökin á Reykhólum hvað þangið varðar. Fyrstu árin eftir að framleiðslan hófst fóru í kynningu og prófanir fagmanna í garðyrkju en vorið 2001 kom Glæðir á almennan markað.

 

Dalli bruggar Glæði í bílskúrskjallaranum sínum við Hellisbraut og segir að framleiðslan sé einföld. Stórverslanir eru með Glæði til sölu í minni brúsunum, svo sem Bónus og Blómaval.

 

Glæðir

 

Athugasemdir

Björk Stefánsdóttir, laugardagur 12 ma kl: 18:00

Frábært hjá Dalla, og það er frábært að sjá hvað fólk hér í sveitinni eru farinn að gera meira með það hráefnið sem býðst hér í hreppnum, t.d þaratöflurnar, þaraböðin og svo glæðirinn. Glæsilegt:-)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31