Tenglar

13. febrúar 2011 |

Gömul en góð úttekt á ferðaþjónustu í Reykhólahreppi

Í gagnasafni á vef Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða er að finna „Úttekt á stöðu og möguleikum ferðaþjónustu í Reykhólahreppi sumarið 1999". Þó að nokkuð langt sé um liðið er úttektin hin fróðlegasta. Margt í henni er í fullu gildi enn í dag og skoðunarvert bæði fyrir ferðaþjóna og annað heimafólk.

„Tilgangur þessa verkefnis er að greina stöðu ferðaþjónustu sem atvinnugreinar í Reykhólahreppi og taka saman hugmyndir um þróun ferðaþjónustunnar í framtíðinni. Greiningin sem slík er ekki fullsköpuð stefnumótun heldur grunnur í frekari vinnu, sem heimamenn geta nýtt sér með það meginmarkmið að efla ferðaþjónustu sem atvinnugrein í sveitarfélaginu“, segir meðal annars í inngangi.

 

„Lögð er áhersla á að umfjöllunin falli innan þess ramma sem settur var með stefnumótun í ferðaþjónustu fyrir Vestfirði og falli að þeim verkefnum sem unnið er að fyrir Vestfirði í heild.

 

Rétt er að taka fram, að þó Flatey sé einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum í Reykhólahreppi nær úttektin ekki til eyjarinnar þar sem samgönguleysi veldur því að gagnkvæm áhrif í þróun ferðaþjónustu eru mjög takmörkuð“, segir einnig í innganginum.

 

Úttekt á stöðu og möguleikum ferðaþjónustu í Reykhólahreppi sumarið 1999 (pdf-skjal, 28 bls.)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31