Gönguhátíðin Gengið um sveit byrjar á föstudag
Nú styttist í gönguhátíðina Gengið um sveit, útivistarhelgina árvissu í Reykhólahreppi um Jónsmessuna, sem verður dagana 21.-24. júní eða frá föstudegi og fram á aðfaranótt mánudags (Jónsmessunótt). Minnt er á, að skráningum í göngur lýkur á morgun, fimmtudag. Hugsanlega geta einhverjir skráð sig eftir það en eiga þá ekki kost á afsláttunum sem samstarfsaðilar hátíðarinnar veita.
Að sögn Hörpu Eiríksdóttur, umsjónarmanns hátíðarinnar, er skráning í stuttu göngurnar svipuð og verið hefur síðustu ár, „en langa gangan hefur slegið í gegn. Við höfum þurft að bæta við leiðsögumanni í hana til að geta annað eftirspurninni. Enda eru allir að segja hvað það sé frábært að geta gengið um þetta fallega svæði og fengið kjötsúpu í miðri göngu! Aðeins eru eftir örfá pláss laus í hana,“ segir hún.
Inn í dagskrána ítarlegu sem birt var fyrir nokkru hefur nú verið bætt tímasetningum þegar hestarnir verða teymdir undir börnum við Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum á föstudag. Athugið, að núna fyrir hádegi á miðvikudegi hefur tímsetningunum verið breytt svo að krakkar sem eru á námskeiðum geti tekið þátt í þessum skemmtilega degi. Jafnframt eru komnar inn nánari upplýsingar um ratleikina sem í boði verða.
Dagskrána er hægt að finna á www.visitreykholahreppur.is undir Hátíðir. Á þeim vef er reyndar miklu, miklu fleira að skoða sér til fróðleiks og ánægju.
Hægt er að skrá sig í göngurnar í síma 894 1011 eða í netfanginu info@reykholar.is.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, segir Harpa Eiríksdóttir.
Sjá einnig:
► Gengið um sveit 2013 - leiðarlýsingar og fleira