Tenglar

14. desember 2015 |

Göngum við í kringum - jólatré

Þarna eru m.a. Ása í Hólabúð og Inga Birna sveitarstjóri með jólasveinahúfur en hægra megin við þær eru tveir jólasveinahúfulausir jólasveinar með hálfétin epli.
Þarna eru m.a. Ása í Hólabúð og Inga Birna sveitarstjóri með jólasveinahúfur en hægra megin við þær eru tveir jólasveinahúfulausir jólasveinar með hálfétin epli.
1 af 3

Ljósin á jólatré Reykhólahrepps við Barmahlíð á Reykhólum voru kveikt núna í morgungrámanum. Auk annarra komu nemendur og starfsfólk Reykhólaskóla og gengið var í kringum tréð og sungin jólalög. Ása og Reynir í Hólabúð (sem alveg eins má kalla Jólabúð um þessar mundir) gáfu síðan öllum epli.

 

Að sjálfsögðu kom tréð innan af Barmahlíð, hlíðinni minni fríðu hans Jóns Thoroddsens frá Reykhólum.

 

Börnin voru eins og vera ber með endurskinsmerki í bak og fyrir. Í skini leifturljósa frá myndavélum voru þau ekki síður uppljómuð en tréð.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31