2. júní 2012 |
Grettislaug: Opið fyrstu helgarnar frá kl. 14
Í dreifibréfi um sumartímann í Grettislaug á Reykhólum, sem borið var í hús í sveitarfélaginu fyrir stuttu, misritaðist tíminn þegar laugin er opin um helgar á tímabilinu 1.-17. júní. Þar segir að laugin sé á þessum tíma opin um helgar kl. 10-20 en hið rétta er kl. 14-20. Í dag er fyrsti laugardagur í júní og þess vegna reyndi á þetta strax núna um tíuleytið.
Upplýsingarnar í dreifibréfinu fóru inn á undirsíðuna um Grettislaug hér á vefnum (dálkurinn hægra megin á forsíðunni). Þar hefur þetta nú verið leiðrétt.