2. febrúar 2015 |
Grettislaug: Sumarstarfsfólk óskast
Reykhólahreppur auglýsir eftir sumarstarfsfólki við Grettislaug á Reykhólum. Um er að ræða bæði full störf og hlutastörf. Umsækjendur þurfa að hafa náð átján ára aldri. Björgunarpróf verða haldin áður en sumartíminn í lauginni hefst.
Hafið samband við Hörpu Eiríksdóttur í síma 894 1011 eða netfanginu grettislaug@reykholar.is fyrir frekari upplýsingar.