5. maí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Grettislaug á Reykhólum: Starfsfólk vantar
Reykhólahreppur auglýsir eftir sumarstarfsfólki við Grettislaug á Reykhólum. Umsækjendur þurfa að hafa náð átján ára aldri. Björgunarpróf verða haldin áður en sumartíminn í lauginni hefst. Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Hafið samband við skrifstofu Reykhólahrepps í síma 434 7880 eða netfanginu skrifstofa@reykholar.is.