11. maí 2011 |
Grettislaug á Reykhólum lokuð um sinn
Grettislaug á Reykhólum verður lokuð í óákveðinn tíma frá og með morgundeginum, fimmtudegi. Ástæðan er árleg viðhaldsvinna og vegna hennar er laugin jafnan lokuð mislengi á þessum tíma vors. Tilkynnt verður hér á vefnum þegar laugin verður opnuð á ný.