15. maí 2009 |
Grettislaug á Reykhólum lokuð um sinn vegna viðhalds
Grettislaug.
Vegna árlegs vorviðhalds verður Grettislaug á Reykhólum lokuð næstu tvær vikurnar. Stefnt er að því að laugin verði opnuð á nýjan leik fyrir hvítasunnuhelgi eða föstudaginn 29. maí. Nánar verður auglýst síðar hvenær dagsins hún verður opin í sumar.