30. mars 2010 |
Grettislaug opin lengur yfir hátíðisdagana
Grettislaug á Reykhólum verður opin lengur um hátíðisdagana í dymbilviku og um páskahelgina en venja er á þessum árstíma. Fimm daga í röð eða frá skírdegi og fram á annan í páskum (1.-5. apríl) verður hún opin frá kl. 14 til 20 dag hvern.