Tenglar

28. ágúst 2015 |

Grettislaug opin næstu tvær vikur

Grettislaug / Árni Geirsson.
Grettislaug / Árni Geirsson.

Eins og hér kom fram í gær er forstöðumaður Grettislaugar á Reykhólum á förum úr héraðinu. Ekki hefur enn tekist að ráða í starfið, að sögn Ingibjargar Birnu Erlingsdóttur sveitarstjóra, og líklegast var að laugin yrði lokuð frá og með morgundeginum. „Við erum samt með tvær umsóknir sem við erum að vinna í,“ segir sveitarstjóri. Á meðan fram úr þessu er ráðið liggur fyrir að laugin verður opin næstu tvær vikurnar „með aðstoð þeirra góðu kvenna sem hafa unnið hvað mest í lauginni í gegnum tíðina.“

 

Þennan tíma verður laugin opin mánudag, miðvikudag og laugardag kl. 16-20 frá næsta sunnudegi, 30. ágúst, og fram á laugardaginn 12. september.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31