25. maí 2009 |
Grettislaug opnuð á ný á fimmtudag
Grettislaug á Reykhólum verður opnuð á ný á fimmtudag í þessari viku að loknum viðhaldsverkefnum tvær síðustu vikurnar. Á fimmtudag og föstudag verður laugin opin kl. 17-21. Á laugardag og hvítasunnudag verður hún opin kl. 14-20. Frá og með mánudeginum 1. júní, sem er annar í hvítasunnu, og til 16. júní, verður hún opin alla daga kl. 14-22. Laugin verður lokuð á þjóðhátíðardaginn 17. júní en frá 18. júní til 16. ágúst verður opið kl. 10-22. Frá 17. ágúst og til loka mánaðarins verður opið kl. 14-22.