Tenglar

27. mars 2015 |

Grettislaug um hátíðisdagana (og ís eftir sund)

Grettislaug. Ljósm. Árni Geirsson.
Grettislaug. Ljósm. Árni Geirsson.

Að venju breytist tíminn hjá Grettislaug á Reykhólum um bænadagana og páskana, eins og fram kemur hér fyrir neðan. En eitt annað breytist strax í dag: Núna verður hægt að fá sér ís þegar komið er upp úr. „Það verður smá úrval hjá okkur fram á vor og svo fyllum við að sjálfsögðu kistuna í byrjun sumars,“ segir Harpa Eiríksdóttir forstöðumaður.

 

Grettislaug verður opin (eða lokuð) í seinni hluta dymbilvikunnar og um páskana sem hér segir:

  • Skírdagur (2. apríl) kl. 15-20
  • Föstudagurinn langi (3. apríl) LOKAÐ
  • Laugardagur (4. apríl) kl. 13-17
  • Páskadagur (5. apríl) LOKAÐ
  • Annar í páskum (6. apríl) kl. 15-20

 

Frá og með þriðjudeginum 7. apríl verður síðan opið eins og hér segir fram til 11. maí, en þá verður lauginni lokað um tíma vegna árlegs viðhalds.

  • Mánudagar kl. 16-20
  • Þriðjudagar LOKAÐ
  • Miðvikudagar kl. 16-20
  • Fimmtudagar kl. 16-21 (breyting)
  • Föstudagar LOKAÐ (breyting)
  • Laugardagar kl. 13-17 (breyting)
  • Sunnudagar LOKAÐ

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31