Tenglar

16. júlí 2017 | Sveinn Ragnarsson

Grillveislan á Reykhóladögum

Grillveislan á laugardagskvöldið í Hvanngarðabrekku verður í höndum Grillmeistarans.

Verð á mann: fyrir 12 ára og eldri, kr. 3500, 5-11 ára kr.1750, og ókeypis fyrir yngri en 5 ára.

Panta þarf í matinn í síðasta lagi þann 24.júlí, sem er mánudagur. Hægt er að panta í gegnum facebook, á tomstundafulltrui@reykholar.is eða í síma 692-3885 (hægt að senda sms eða hringja). Taka verður fram í pöntununni hversu margir fullorðnir eru og hversu mörg börn.

 

Matseðill:

Eldgrillað lambainnralæri (það besta úr lærinu)
Eldgrillaðar piri piri kjúklingabringur
Bakaðar kartöflur með smjöri og hunangsrelishsósu
Grillað grænmeti
Ferskt salat Grillmeistarans
Rjómapiparsósa

 

  Vonandi leikur veðrið við okkur!

 


Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31