Tenglar

17. júní 2009 |

Grútarblautum breiðfirskum ungerni komið til bjargar

Örninn ungi í öruggum höndum.
Örninn ungi í öruggum höndum.
Ferðafólk í útilegu tilkynnti lögreglu um örn í vanda í Nátthaga við Berserkjahraun á Snæfellsnesi á föstudagskvöldið. Starfsmaður Náttúrustofu Vesturlands fór á staðinn og handsamaði örninn, sem reyndist vera grútarblautur. Grúturinn eyðileggur einangrunargildi fiðursins og gerir fuglinum jafnframt erfitt um flug.

 

Fuglinn bar merki og hafði verið merktur á síðasta ári sem ungi á eyju í Hvammsfirði.

 

Hann var fluttur í Borgarnes þar sem Kristinn Haukur Skarphéðinsson, starfsmaður Náttúrufræðistofnunar, tók við honum og flutti áfram í Húsdýragarðinn í Reykjavík til aðhlynningar og fiðurþvottar. Vonast er til þess að fuglinn komist aftur til síns heima innan skamms.

 

Þetta kemur fram á vef Náttúrustofu Vesturlands. Þar eru jafnframt fleiri myndir.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31