Tenglar

19. desember 2012 |

Guðmundur Hauksson býður í kveðjukaffi

Við útigrillið ásamt Rebekku á Stað og Ástu Sjöfn á Litlu-Grund.
Við útigrillið ásamt Rebekku á Stað og Ástu Sjöfn á Litlu-Grund.
1 af 4

Guðmundur Hauksson sjúkraliði, sem starfað hefur á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum síðustu árin, er á förum á föstudag. Af því tilefni býður hann heimilisfólkinu þar, vandamönnum þess og öðrum sveitungum í svolítið kveðjukaffi í Barmahlíð kl. 15 á morgun, fimmtudag 20. desember.

 

Guðmundur er upprunninn í Keflavík. Núna flyst hann aftur á heimaslóðir og fer til starfa á Hlévangi, dvalarheimili aldraðra í Keflavík.

 

„Dvölin hér á Reykhólum hefur verið mér ákaflega góð, þökk sé heimilisfólkinu og starfsfólkinu hér í Barmahlíð og öðrum í héraðinu. Ég kveð sveitina með söknuði og vona að ég sjái sem flesta yfir kaffisopa og pönnukökum á morgun. Þeim sem ekki sjá sér fært að koma þakka ég góð kynni og góðar stundir,“ segir hann.

 

Vitnisburður þeirra sem kynnst hafa Guðmundi Haukssyni hér á Reykhólum og notið starfa hans og annarra kynna er á einn veg: Hann er einstaklega geðþekkur, ljúfur og hjálpsamur. Guðmundi er þökkuð umhyggjusemi í störfum og góð viðkynning og honum óskað velfarnaðar um alla framtíð.

 

Hér fylgja nokkrar svipmyndir af Guðmundi ásamt heimilisfólki, starfsfólki og gestum í Barmahlíð.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31