Tenglar

9. apríl 2014 | vefstjori@reykholar.is

Guðmundur á Grund sextugur

Kristján Steinn, Ketill Ingi og Tindur Ólafur með pabba sínum. Á innfelldu myndinni eru þau hjónin Ásta Sjöfn og Guðmundur.
Kristján Steinn, Ketill Ingi og Tindur Ólafur með pabba sínum. Á innfelldu myndinni eru þau hjónin Ásta Sjöfn og Guðmundur.
1 af 2

Guðmundur Ólafsson á Litlu-Grund í Reykhólasveit (líklega betur þekktur sem Gummi á Grund) er sextugur í dag. Af því tilefni verður afmælisbarnið „til sýnis“ í borðsal Reykhólaskóla á milli kl. 19 og 21 á laugardagskvöldið, 12. apríl. Allir er að sjálfsögðu velkomnir. Þess má geta, að í dag eiga hann og Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir eiginkona hans jafnframt tíu ára brúðkaupsafmæli.

 

Guðmundur var í hópi Lionsfélaganna sem skruppu til Færeyja um helgina (sjá næstu frétt hér á undan). Þar notaði Eyvindur Magnússon formaður Lionsdeildarinnar í Reykhólahreppi tækifærið og afhenti honum afmælisgjöf frá Lions, forláta klukku, eins og sjá má á seinni myndinni. Á fyrri myndinni er Guðmundur ásamt sonunum þremur og eiginkonu sinni.

 

Athugasemdir

Eyvindur, mivikudagur 09 aprl kl: 14:17

Til hamingju gamli

Bjarni Ólafsson frá Nesi, mivikudagur 09 aprl kl: 14:51

Innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn Guðmundur.

Hjalti og Inga, mivikudagur 09 aprl kl: 15:16

Hamingju óskir á afmælisdaginn Guðmundur.

Ingvar Samuelsson, mivikudagur 09 aprl kl: 16:57

Hamingjuóskir með daginn Guðmundur.

Harpa Eiríksdóttir, mivikudagur 09 aprl kl: 22:11

Til hamingju með þennan flotta dag :)

Kristín I Tómasdóttir (yngri), fimmtudagur 10 aprl kl: 10:17

Innilegar haminguóskir með daginn í gær:-)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31