19. nóvember 2009 |
Guðrúnarlaug og blygðunarhúsið
Strax er farið að bera á vaxandi umferð að Laugum í Sælingsdal vegna Guðrúnarlaugar og blygðunarhússins sem þar er risið, segir á Dalavefnum. Guðrúnarlaug er opin fyrir gesti og gangandi og ekkert því til fyrirstöðu að fólk komi og njóti þessarar nýjustu afurðar Dalamanna í menningartengdri ferðaþjónustu. Blygðunarhúsið er eins og nafnið bendir til ætlað laugargestum til fataskipta svo að þeir þurfi ekki að flagga blygðun sinni á bersvæði við laugina.
Sjá hér margar fleiri myndir frá Guðrúnarlaug á vef Dalamanna.
Sjá einnig:
18.10.2009 Laug Guðrúnar Ósvífursdóttur opnuð um næstu helgi