Tenglar

6. maí 2011 |

„Gulldrengirnir“ á Reykhólum spila á Siglufirði

Eyvindur og Jökull taka við gullverðlaunum í Búðardal.
Eyvindur og Jökull taka við gullverðlaunum í Búðardal.
Núna eru Reykhólamenn í fyrsta sinn meðal liðsmanna í bridgesveit Vestfirðinga á kjördæmamóti Bridgesambands Íslands, sem fram fer á Siglufirði um helgina. Það eru þeir Eyvindur Magnússon og Jökull Kristjánsson, sem fengu gullverðlaunin á opnu bridgemóti á Jörfagleði Dalamanna um páskana. Kjördæmamótið hefur verið haldið ár hvert í meira en tvo áratugi. Eins og áður er miðað við gömlu kjördæmin átta en ekki núverandi kjördæmaskipan.

 

Óskar Elíasson í Súðavík er í sveit Vestfirðinga og hefur aldrei frá upphafi misst úr mót. Þegar tíðindamaður Reykhólavefjarins / bb.is heyrði í honum síðdegis var hann í kaffi í Brú í Hrútafirði á leiðinni norður. Hann sagði að mótið legðist bara vel í mannskapinn en sem gamalreyndur maður vildi hann engu spá um úrslitin.

 

bb.is  Hefur aldrei misst úr kjördæmamót í bridge

30.04.2011  Bridge: Reykhólamenn fengu gull og bikara

 

Athugasemdir

solla Magg, laugardagur 07 ma kl: 00:37

Flott hjá strákunum, Eyvindur og Jökull þið eruð bestir og til lukku með gullið ..

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31