25. mars 2009 |
Gunnar Sigurðsson leiðir O-listann í NV-kjördæmi
Nýtt stjórnmálaafl, Borgarahreyfingin, hyggst bjóða fram til Alþingis í NV-kjördæmi. Gunnar Sigurðsson leikstjóri og verkefnastjóri leiðir listann í kjördæminu. Gunnar segir að fólkið í landinu hafi þurft að taka ábyrgð á efnahagsástandinu og bankahruninu og því sé eins gott að það bjóði þá fram til Alþingis. Frá þessu er greint á vefsíðu Svæðisútvarps Vestfjarða. Þar kemur einnig fram að ætlun Borgarahreyfingarinnar sé að koma á breytingum, hreinsa út spillingu og koma á virkara lýðræði. Þegar framboðið hafi náð markmiðum sínum verði það lagt niður.
Á heimasíðu hreyfingarinnar er enn sem komið er ekkert finnanlegt um framboð í einstökum kjördæmum. Listabókstafur Borgarahreyfingarinnar mun verða O.