Gunnlaugur Júlíusson hljóp fyrsta „haustlitahlaupið“
Stórhlauparinn Gunnlaugur Júlíusson, hagfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, hljóp um síðustu helgi fyrsta formlega „haustlitahlaupið" frá Flókalundi í Bjarkalund, samtals um 125 km vegalengd á tveimur dögum. Áningarstaðurinn um nóttina var í Djúpadal í Djúpafirði. Með Gunnlaugi í för voru Ingólfur Sveinsson geðlæknir, Stefán Viðar Sigtryggsson Íslandsmeistari í maraþoni og hjónin Jóhanna Eiríksdóttir og Ívar Adolfsson. Þau fjögur skiptust á að hlaupa hluta af leiðinni og selflytja bílana eftir því sem ferðinni vatt fram.
Þegar komið var í Þorskafjörð og dró að leiðarlokum tók hópur fólks á móti hlaupurunum „með sveitarstjórahjónin í Reykhólasveit í broddi fylkingar. Það var ánægjulegt að fá slíkar móttökur við leiðarlok", segir Gunnlaugur á bloggi sínu.
Mynd nr. 1 tók Óskar Steingrímsson af þeim Stefáni Viðari og Gunnlaugi á sprettinum áleiðis út með Þorskafirði. Hinar myndirnar eru af bloggvef Gunnlaugs. Á mynd nr. 2 er hópurinn við Flókalund áður en lagt var af stað en á mynd nr. 3 er móttökunefndin á tali við Stefán Viðar og Ingólf.
Bloggvefur Gunnlaugs Júlíussonar – frásögn af hlaupinu og margar myndir.