Tenglar

15. júní 2014 | vefstjori@reykholar.is

HM-tilboð í Bjarkalundi

Í tilefni af HM í fótbolta er Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit með tilboð á hamborgara og stórum á krana á kr. 2.000 og 12 tommu pizzu að eigin vali og stórum á krana á kr. 2.500, segir í tilkynningu frá Þorsteini Hauki Þorsteinssyni hótelstjóra. Í setustofunni í Bjarkalundi er hægt að horfa á leikina í góðra vina hópi og njóta veitinganna um leið. Þetta tilboð gildir allt til loka HM, en úrslitaleikurinn fer fram sunnudaginn 13. júlí. Verið hjartanlega velkomin, segir Þorsteinn Haukur.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31