HSS býður krökkum í UDN á íþróttamót
Héraðssamband Strandamanna (HSS) hefur boðið Ungmennasambandi Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) að taka þátt í Barnamóti HSS sem haldið verður á Drangsnesi við Steingrímsfjörð á sunnudag. Mótið hefst kl. 14. Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólahreppi er meðal aðildarfélaga UDN.
Flokkar og keppnisgreinar:
8 ára og yngri - 60 m hlaup, boltakast og langstökk.
9-10 ára - 60 m hlaup, boltakast og langstökk.
11-12 ára - 60 m hlaup, kúluvarp, spjótkast, langstökk og hástökk.
Arnar Snæberg Jónsson, framkvæmdastjóri HSS, tekur við skráningum á mótið. Aðeins er tekið við skráningum í netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is og helst þarf að skrá þátttöku fyrir klukkan 12 á hádegi á morgun, laugardag.
Eftir mótið verður öllum gestum boðið í grillaðar pylsur, drykk og tilheyrandi meðlæti. Hlökkum til að hitta sem flesta! segir Arnar Snæberg.