Tenglar

23. nóvember 2012 |

Hæsti styrkurinn kemur á Reykhóla

Í heilsubaði í Sjávarsmiðjunni á Reykhólum með fagra sýn suður yfir blíðan Breiðafjörð.
Í heilsubaði í Sjávarsmiðjunni á Reykhólum með fagra sýn suður yfir blíðan Breiðafjörð.

Sjávarsmiðjan á Reykhólum og Reykhólahreppur í sameiningu hlutu hæsta styrk Ferðamálastofu „til skipulags og hönnunar áfangastaða fyrir ferðamenn“ að þessu sinni. Tuttugu umsóknir bárust en fimm verkefni hlutu styrki. Annað verkefni í grenndinni hlaut einnig styrk, en það varðar Flókatóftir við Brjánslæk á Barðaströnd. Styrkurinn sem kemur í hlut Sjávarsmiðjunnar og Reykhólahrepps nemur 2,9 millj. króna. Verkefnið er skilgreint á þessa leið: 

  • Hanna og þróa faglega heildarmynd fyrir svæðið og þá uppbyggingu sem þar á að fara fram og er ætluð ferðamönnum. Um er að ræða bætt aðgengi til sjóbaða, göngustíga, hleðslur í hringum hveri, aðgengi og verndun á gamalli torfsundlaug. Hanna merkingar, bæði til að miðla upplýsingum um öryggi og aðgengi sem og í fræðslutilgangi um náttúru- og söguminjar svæðisins.

 

Athygli vekur, að þrír af styrkjunum fimm renna til verkefna á Vestfjarðakjálkanum og sá fjórði fer á „næsta bæ við“ eða í Hrútafjörðinn.

 

Hinir styrkirnir fjórir og lýsingar á verkefnunum:

 

Útihvalasafn og göngustígar í Súðavík, kr. 2.500.000
Hanna og skipuleggja útihvalasafn í gömlu byggðinni í Súðavík, sem og göngustíga við sjávarsíðuna þar sem saga hvalveiða og vinnslu við Álftafjörð verður sögð í máli og myndum á upplýsingaskiltum.

 

Hrútleiðinlegt safn í Hrútafirði, kr. 1.800.000
Endurhanna sýningarrými og inngang í byggðasafninu á Reykjum í Hrútafirði, sem og endurskipuleggja útisvæði safnsins með það að markmiði að tengja það betur sögu héraðsins.

 

Flókatóftir við Brjánslæk á Barðaströnd, kr. 1.700.000
Vinna hönnun og skipulag við Flókatóftir við Brjánslæk á Barðaströnd, friðlýstar fornleifar sem draga nafn sitt af Hrafna-Flóka. Verkefninu er ætlað að vekja athygli á merkri sögu svæðisins og hvernig, samkvæmt sögnum, hugmyndin um nafnið Ísland varð til á svæðinu.

 

Óbyggðasafn Íslands, kr. 1.100.000
Vinna hönnun og skipulag við Óbyggðasafn Íslands sem verður byggt upp á sveitabænum Egilsstöðum. Bærinn er innsta byggða bólið í Norðurdal í Fljótsdal og er við þröskuld Vatnajökulsþjóðgarðs og við stærstu óbyggðir Norður-Evrópu. Markmið Óbyggðasafnsins er að bjóða upp á hágæða menningarferðaþjónustu sem byggir á menningararfi og náttúru óbyggðanna og jaðarbyggða þeirra.

 

Áætlað er styrkir sem þessir verði aftur í boði á næsta ári og að auglýst verði eftir umsóknum haustið 2013.

 

Sjávarsmiðjan

Stöð 2 heimsækir Sjávarsmiðjuna á Reykhólum (myndskeið úr fréttum)

Ferðamálastofa

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31